Quantcast
Channel: Efling stéttarfélag
Viewing all articles
Browse latest Browse all 1268

Áskorun gegn gjaldskrárhækkunum

$
0
0

Efling fundaði í dag með Samtökum atvinnulífsins ásamt samfloti landssambanda og stærstu stéttarfélaga á almennum vinnumarkaði. Fundurinn var um endurnýjun kjarasamninga á almennum vinnumarkaði og stýrði ríkissáttasemjari honum.

Á fundinum samþykktu samningsaðilar eftirfarandi ályktun þar sem skorað er á fyrirtæki og opinbera aðila að halda aftur af verð- og gjaldskrárhækkunum:

„Samtök atvinnulífsins og breiðfylking landssambanda og stærstu stéttarfélaga á almenna vinnumarkaðinum hafa tekið höndum saman um gerð langtímakjarasamninga sem auka fyrirsjáanleika og stöðugleika í efnahagslífinu.

Samningsaðilar eru sammála um að eitt mikilvægasta verkefnið í komandi kjaraviðræðum sé að ná niður mikilli verðbólgu og háu vaxtastigi sem komið hefur hart niður á bæði heimilum og fyrirtækjum.

Til að það markmið náist verða allir aðilar vinnumarkaðarins, fyrirtæki landsins, ríki og sveitarfélög að leggjast á eitt og getur enginn skorast undan ábyrgð.

Samningsaðilar skora á fyrirtæki landsins, ríki og sveitarfélög að styðja við markmið kjarasamninganna um að ná niður verðbólgu og þar með vöxtum, með því að halda aftur af gjaldskrár- og verðhækkunum og launaskriði.“


Viewing all articles
Browse latest Browse all 1268