Quantcast
Channel: Efling stéttarfélag
Viewing all articles
Browse latest Browse all 1269

Átt þú rétt á orlofsuppbót 2017?

$
0
0

Full orlofsuppbót árið 2017 er 46.500 kr.

Orlofsuppbót á að koma til greiðslu 1. júní ár hvert. Hjá starfsfólki Hveragerðisbæjar, Kópavogsbæjar, Seltjarnarnesbæjar, Mosfellsbæjar og Sveitarfélagsins Ölfuss greiðist hún 1. maí.

Þeir sem hafa verið í fullu starfi á orlofsárinu, 1. maí  – 30. apríl hvert ár, eiga rétt á fullri uppbót annars greiðist hún í samræmi við starfshlutfall og starfstíma. Orlofsuppbót er föst fjárhæð og orlof reiknast ekki ofan á orlofsuppbótina.

Einkafyrirtæki – Samtök atvinnulífsins:  Fullt ársstarf m.v. 45 vikur eða 1800 klst. Þeir sem hafa verið samfellt í starfi hjá atvinnurekanda í 12 vikur á síðustu 12 mánuðum m.v. 30. apríl eða er í starfi fyrstu viku í maí eiga rétt á uppbót.

Ríki, hjúkrunarheimili, Reykjavíkurborg og önnur sveitarfélög: Þeir sem hafa starfað 13 vikur samfellt á orlofsárinu eða eru í starfi til 30. apríl eiga rétt á uppbót.

Orlofsuppbót á að gera upp við starfslok.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 1269