Quantcast
Channel: Efling stéttarfélag
Viewing all articles
Browse latest Browse all 1269

Aftur í vinnu!

$
0
0

Hefur þú misst vinnuna?

Viltu komast skrefi lengra í atvinnuleit?

Ef svo er gætu örnámskeiðin Aftur til vinnu fyrir félaga í Eflingu, Hlíf og Verkalýðs- og sjómannafélagi Keflavíkur og nágrennis (VSFK) hentað þér.

Á námskeiðunum eru kynnt hagnýt ráð í atvinnuleit, t.a.m. um hvernig best sé að koma sér á framfæri, hvar sé best að bera niður og hvernig sé hægt að nýta sér tölvutækni til að ná árangri.

Kennsla fer fram í 14 manna hópum – tveir kennarar kenna hverjum hópi – allir fá afnot af fartölvu.

Eftirfarandi námskeið á íslensku eru í boði.

  • Hvað hef ég fram að færa? Safnað í færnimöppu.
    Námskeiðið fer fram  þann 22. júní: kl. 9-12.
  • Hver er ég? Gerð ferilskrár og kynningarbréfs.
    Námskeiðið fer fram  þann 24. júní: kl. 9-12.
  • Hvernig ber ég mig að? Hagnýt ráð í atvinnuleit.
    Námskeiðið fer fram  þann 26. júní: kl. 9-12.
  • Hvernig nýtist tæknin mér í atvinnuleit? Notkun tækni og samskiptaforrita í atvinnuleit.
    Námskeiðið fer fram  þann 29. júní: kl. 9-14:30 (hálftíma matarhlé).

 

Eftirfarandi námskeið á ensku eru í boði.

  • Hvað hef ég fram að færa? Safnað í færnimöppu.
    Námskeiðið fer fram  þann 22. júní: kl. 12.30-15.30.
  • Hver er ég? Gerð ferilskrár og kynningarbréfs.
    Námskeiðið fer fram  þann 24. júní: kl. 12.30-15.30.
  • Hvernig ber ég mig að?Hagnýt ráð í atvinnuleit.
    Námskeiðið fer fram  þann 26. júní: kl. 12.30-15.30.
  • Hvernig nýtist tæknin mér í atvinnuleit? Notkun tækni og samskiptaforrita í atvinnuleit.
    Námskeiðið fer fram  þann 29. júní: kl. 9-14:30 (hálftíma matarhlé).

Námskeiðin kosta 3.000 kr. að því undanskildu að tækninámskeiðið kostar 4.000 kr.

Öll námskeiðin fara fram í húsnæði Mímis við Höfðabakka 9.

Skráning fer fram hér.

Hlökkum til að sjá þig!

 

 

 


Viewing all articles
Browse latest Browse all 1269