Faghópar leikskólaliða og félagsliða í Eflingu – stéttarfélagi ætla að eiga sameiginlega fræðslu- og samverustund.
Hóparnir ætla að hittast þriðjudaginn 14. nóvember 2017 kl. 20:00 í fræðslusetri Eflingar, Sætúni 1 (við Guðrúnartún), á 4. hæð
Matti Ósvald Stefánsson verður með fyrirlesturinn Sigraðu sjálfa/n þig og hitt kynið
Boðið verður uppá veitingar
Hlökkum til að sjá þig
Stjórnir faghóps leikskólaliða og faghóps félagsliða