Quantcast
Channel: Efling stéttarfélag
Viewing all articles
Browse latest Browse all 1269

Stóru málin: Fundaröð Eflingar um nýjar áherslur í vinnumarkaðsmálum

$
0
0

Efling – stéttarfélag boðar til fundaraðar þar sem fjallað verður um stórar spurningar varðandi vinnumarkaðsmál og tengd efni. Tilgangur fundaraðarinnar er að hvetja til opinnar umræðu um vinnumarkaðsmál út frá hagsmunum félagsmanna Eflingar, ekki síst með hliðsjón af komandi kjarasamningavetri. Þá er fundaröðin einnig hugsuð sem innlegg til umræðu um markmið og samfélagssýn verkalýðshreyfingarinnar, en hreyfingin hefur undirgengist talverða endurnýjun á síðustu misserum og þörfin fyrir hugmyndafræðilega endurskoðun er brýn.

Fundirnir eru allir með því sniði að fyrirlesari með sérþekkingu á tiltekinni hlið vinnumarkaðsmála flytur upphafserindi og að því búnu verður boðið til pallborðsumræðu undir stjórn fundarstjóra og boðið upp á fyrirspurnir úr sal. Fundirnir verða allir á mánudögum í júní og hefjast klukkan 16:30. Þeir eru haldnir á Grand Hótel Reykjavík í Sigtúni, í salnum Hvammi á jarðhæð, og eru opnir öllum án aðgangseyris. Fundunum verður streymt í gegnum samfélagsmiðla Eflingar og verður túlkur á staðnum sem þýðir það sem fram fer með texta á skjá. Kaffi og létt snarl verður í boði án endurgjalds.

Á fyrsta fundinum í röðinni, þann 4. júní, mun Stefán Ólafsson prófessor í félagsfræði halda fyrirlestur undir yfirskriftinni Þjóðarsáttin og þróun ójöfnuðar á Íslandi. Í fyrirlestrinum mun Stefán gera grein fyrir helstu niðurstöðum rannsóknar sinnar Ójöfnuður á Íslandi en um leið svara þeirri spurningu hvaða áhrif Þjóðarsáttarsamningarnir 1990 höfðu á þróun ójöfnuðar. Um er að málefni sem hefur verið talsvert í umræðunni í tengslum við málflutning ASÍ um Þjóðarsáttina og ólíkar nálganir á kjarasamingagerð.

Frekari upplýsingar um fundinn má sjá hér. 

Á öðrum fundinum, sem haldinn verður 11. júní, mun breski hagfræðingurinn Özlem Onaran flytja fyrirlestur undir heitinu Equality-led development and the role of trade unions eða Hagþróun á forsendum jöfnuðar og hlutverk verkalýðsfélaga. Onaran hefur unnið úttektir fyrir Alþjóða vinnumálastofnunina og birt fjölda greina um efnahagslegan ávinning þess að auka hlut launa í þjóðarframleiðslu. Fundurinn verður á ensku en verður túlkaður á íslensku með texta á skjá.

Frekari upplýsingar um fundinn koma síðar.

Þriðji fundurinn, þann 18. júní, er skipulagður í kringum erindi Ólafs Margeirssonar sem nefnist Geta lífeyrissjóðir byggt upp húsnæðisleigumarkað á Íslandi? Framkvæmd, fjárhagsleg tækifæri og þjóðhagsleg áhrif. Í erindinu ræðir Ólafur um hvernig nýta mætti íslenska lífeyrissjóðakerfið til að bregðast við ástandinu  á leigumarkaði og mun hann m.a. greina frá samanburði við Sviss.

Frekari upplýsingar um fundinn koma síðar.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 1269