Stöndum saman um að vekja athygli almennings á virðingarleysi samfélagsins gagnvart umönnunarstörfum.
Göngum fylktu liði frá Eflingarhúsinu við Guðrúnartún 1 á setningu Jafnréttisþing í Hörpu kl. 9.30 í fyrramálið, fimmtudaginn 20. febrúar.
Einnig er hægt að sameinast hópnum við ráðstefnu- og tónlistarhúsið kl. 9.50.
Myndum órjúfanlega blokk. Tryggjum að ráðamenn horfi ekki lengur í gegnum okkur.
Samstaða er okkar beittasta vopn!
Saman breytum við samfélaginu!