Quantcast
Channel: Efling stéttarfélag
Viewing all articles
Browse latest Browse all 1269

Örugg í vinnunni?

$
0
0

Í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna efna ASÍ, BHM, BSRB, KÍ, Jafnréttisstofa og Jafnréttisráð til hádegisverðarfundar þriðjudaginn 8. mars 2016 þar sem fjallað verður um kynbundna og kynferðislega áreitni á vinnustöðum.

Fundurinn verður haldinn á Hvammi, Grand Hótel Reykjavík kl. 11.45 til 13.00 þriðjudaginn 8. mars.

Mynd-jafnretti1Erindi:
• Kynbundin og kynferðisleg áreitni á vinnustað – Sonja Ýr Þorbergsdóttir, lögfræðingur BSRB.
• Kynbundið vald og vinnumarkaðurinn – Drífa Snædal, framkvæmdastjóri Starfsgreinasambands Íslands.
• Er kynferðisleg áreitni óhjákvæmileg? – Finnborg Salome Steinþórsdóttir, doktorsnemi í kynjafræði við stjórnmálafræðideild Háskóla Íslands.
Fundarstjóri verður Laufey E. Gissurardóttir, formaður Þroskaþjálfafélags Íslands

Boðið verður upp á hádegisverð og kostar hann 2.500 krónur. Í boði verður Chili- og engiferkrydduð kjúklingabringa, sætar kartöflur og rótargrænmeti ásamt kaffi.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 1269