Quantcast
Channel: Efling stéttarfélag
Viewing all articles
Browse latest Browse all 1268

Áhugavert námskeið um stjórnun á slysavettvangi

$
0
0

Námskeiðið er sérstaklega gagnlegt atvinnubílstjórum en er öllum opið. Farið verður yfir atriði sem skipta máli þegar kemur að stjórnun á slysavettvangi: Hvað þarf að hafa í huga til að tryggja rétt vinnubrögð? Hvernig fáum við yfirsýn? Hvernig komum við upplýsingum frá okkur til þar til gerðra aðila? Bæði verður farið yfir minni sem og stærri slys ásamt þeim ferlum sem fara í gang í stærri aðgerðum. Þá er einnig fjallað um hvernig skuli standa að því að óska eftir og svo taka á móti þyrlu þegar þess þarf. Leiðbeinendur og nemendur miðla af reynslu sinni. Námskeiðið er haldið af Björgunarskóla Slysavarnafélagsins Landsbjargar og er 3 klukkustundir að lengd.

Kennt: Mið. 11. okt. frá kl. 18:30–21:30. Kennsla fer fram hjá Eflingu-stéttarfélagi, Sætúni /Guðrúnartúni 1, 4. hæð.

Skráning hjá Eflingu í síma 510 7500 eða á efling@efling.is


Viewing all articles
Browse latest Browse all 1268