Quantcast
Channel: Efling stéttarfélag
Viewing all articles
Browse latest Browse all 1269

Útilegukortið 2016

$
0
0

Sparaðu með því að nota kortið í útilegunni

Kort sem veitir aðgang að u.þ.b. 41 tjaldsvæði hringinn í kringum landið

Útilegukortið hefur verið starfrækt í þó nokkur ár og hefur sannarlega notið mikilla vinsælda og er enn í miklum vexti.

Efling er með kortið í sölu á skrifstofum félagsins á frábæru verði, eða aðeins 9.000 kr. Fullt verð er 15.900 kr., svo félagsmenn geta sparað verulega með þessum kaupum. Einnig er hægt að senda tölvupóst á thorunn@efling.is eða efling@efling.is ef félagsmaður vill fá kortið sent heim til sín og fær þá viðkomandi upplýsingar um hvernig hægt er að ganga frá greiðslu.

Mikil sala hefur verið á Útilegukortinu undanfarin ár og getur handhafi þess gist ásamt maka og allt að fjórum börnum undir 16 ára aldri á yfir fjórða tug tjaldsvæða allt í kringum landið.

Með Útilegukortinu má gista allt að fjórar nætur samfellt á hverju tjaldsvæði. Engin takmörk eru fyrir því hve oft má koma á hvert tjaldsvæði og gildir kortið hámark 28 nætur í heild og gildir fyrir hjólhýsi, tjaldvagna, fellihýsi, húsbíla og venjuleg tjöld.

5 punktar fara af punktainneign félagsmanns við kaup á Útilegukortinu.

Frekari upplýsingar um kortið og tilboð á vegum þess má fá á vefsíðunni www.utilegukortid.is.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 1269